Bónađ af miklum móđ

  • Fréttir
  • 6. apríl 2009

Strákarnir í meistaraflokki karla í knattspyrnu notuðu helgina til þess að bóna bíla af miklum móð til þess að fjármagna æfingaferð til Vestmannaeyja síðar í mánuðinum. Ekki verður farið til útlanda að þessu sinni enda aðhald á öllum sviðum en strákarnir í Grindavíkurliðinu lofa skemmtilegu sumri.

Grindavík mætir Keflavík í deildarbikarnum á miðvikudaginn í Reykjaneshöllinni en þetta er síðasti leikur liðsins í riðlinum. Grindavík þarf jafntefli til að gulltryggja sig í átta liða úrslitin í fyrsta skipti síðan 2003.
Á myndinni eru Ray Anthony Jónsson og Gilles Ondo, leikmenn Grindavíkurliðsins að bóna af krafti og á neðri myndinni er Orri Freyr Hjaltalín fyrirliði í gæðaeftirlitinu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir