Árleg listsýning á leikskólanum Laut var haldin um helgina á vegum foreldrafélagsins. Foreldrar, afar og ömmur og aðstandendur fjölmenntu með börnunum og keyptu listaverk á vægu verði sem börnin hafa búið til í vetur og voru stórglæsileg.
Þá svignaði hlaðborðið undan glæsilegum kræsingum.
Fleiri myndir á heimasíðu Lautar: http://leikdal.simnet.is/Myndir/Myndlistas%C3%BDning%202009/album/