Grindavík sótti ekki gull í greipa KR-inga í fyrstu rimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. KR náði strax yfirhöndinni, forystan var mest 23 stig í þriðja leikhluta en frábær endasprettur Grindvíkinga dugði skammt og svo fór að KR vann með fjögurra stiga mun, 88-84.
Nick Bradford átti stórleik fyrir Grindavík og skoraði 38 stig og hirti 9 fráköst, Helgi Jónas Guðfinnsson átti einnig prýðis leik og skoraði 13 stig og Brenton Birmingham skoraði 12. Grindvíkingar réðu ekki við hraðann í sóknarleik KR-inga og virtust ekki hafa trú á verkefninu framan af.
Nick Bradford var ekki ánægður með leik Grindvíkinga: ,,Þú vinnur sem lið og þú tapar sem lið og í dag þá komum við mjög flatir í þennan leik, við vorum ekki tilbúnir og KR-ingar voru einfaldlega sterkari og duglegari í dag," sagði Bradford við karfan.is og bætti við að Grindvíkingar þyrftu heldur betur að girða sig í brók fyrir mánudaginn þegar liðin mætast í sínum öðrum úrslitaleik í Röstinni í Grindavík.
,,Við þurfum að sýna meiri líkamlegri styrk og spila af meiri festu. Við gerðum ekkert rétt í dag en töpuðum samt með fjórum stigum svo það er margt jákvætt sem við ættum að geta tekið frá leiknum í dag," sagði Bradford og bætti við: ,,Það er ekki spurning að KR þarf að fara í gegnum mig og Grindavík þrisvar sinnum til þess að verða Íslandsmeistari og þessi leikur í dag var bara einn leikur," sagði Bradford.
Myndin er frá www.karfan.is