Tónlistarskóli Grindavíkur bauð upp á tónfund í Víðihlíð á dögunum en slíkt er gert með reglulegu millibili. Þar koma nemendur Tónlistarskólans fram og taka nokkur lög en þetta er liður í því að æfa sig að koma fram fyrir tónleika. Síðasti tónfundur endurspeglaði vel þá fjölbreyttu flóru sem stundar nám við skólann.
Leikið var á ýmis hljóðfæri og söngnemendur tóku einnig lagið. Eldri borgararnir á Víðihlíð ásamt gestum kunnu sannarlega vel að meta þessa tónlistarveislu þar sem flytjendur voru í raun á öllum aldri. Hér má sjá fleiri myndir tónfundinum.