Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur náðu frábærum árangri í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Suðurnesjum sem er fyrir 8., 9. og 10. bekk en úrslitin verða tilkynnt á morgun. Þegar skoðuð eru 10 efstu sætin í hverjum árgangi kemur í ljós að Grunnskóli Grindavíkur á hvorki fleiri né færri en 7 einstaklinga, eða 23,3% af efstu 10 sætum allra hópa. Það eitt og sér er til marks um að vel er búið að stærðfræðikennslu í Grindavík.
Myndin var tekin á árshátíðarballi grunnskólans á dögunum.