Mikið var um að vera síðasta föstudagskvöld á menningarvikunni. Lions var með Kútmagakvöld í Lavasal Bláa lónsins þar sem mættu um 280 karlar. Körfuboltinn var með kvennakvöld í Salthúsinu og þar var
fullt hús og síðan léku Geimfararir fyrir dansi. Þá voru tónleikar unglingahljómsveita í Kvennó sem tókust ljómandi vel.
Á tónleikunum komu fram meðal annars þau Axel, Viktor, Brynjar og Jónína en þau eru nemendur í grunnskólanum. Axel og Viktor komu einnig fram tveir saman í lok tónleikanna. Stefanía Margeirsdóttir og Agnes Björk Andradóttir tóku nokkur skemmtileg lög og Óskar Kristinn, Albert og Valdimar létu einnig mikið að sér kveða. Tónleikarnir voru hin besta skemmtun og unga fólkið sem kom skemmti sér mjög vel.