Grindavík og Snæfell mætast í þriðja leik liðanna í Röstinni kl. 15.15 á morgun í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta. Fari Grindavík með sigur af hólmi er liðið komið í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn.
Körfuknattleiksdeildin ætlar að hita upp fyrir leikinn með því að bjóða í pylsupartý við íþróttahúsið fyrir leikinn, eða frá kl. 13:30 - 14:30. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna og styðja svo við bakið á strákunum. Pylsupartýið eru í boði Nettó og Hérastubbs.