Óhætt er að segja að gestkvæmt hafi verið á slökkvistöðinni að undanförnu. Börn af heilsuleikskólanum Krók kíktu í heimsókn á dögunum og var þeim boðið að fara upp í alla bílana. Þá heimsótti 2. bekkur H slökkvistöðina en þetta er einn af mörgum vinnustöðum sem krakkarnir hafa heimsótt að undanförnu.
Þá komu nemendur í 4. til 9. bekk sérdeildar Grunnskóla Grindavíkur einnig í heimsókn. Þau fengu að prófa svolítið af búnaði en ákveðið var að þau koma aftur í vor og fá þá að prófa að sprauta úr slöngu frá slökkvibíl.
Fleiri myndir á:
http://www.slokkvilid.com/AlbumBirta.aspx?id=5fba4efc-9a31-49bc-826a-3a3947322f67