Björn Haraldsson, bæjarfulltrúi Frjálslynda flokksins, mætti í heitu pottana í Sundlaug Grindavíkur kl. 07.30 í morgun til þess að spjalla við pottverja um málefni líðandi stundar en þetta er hluti af menningarvikunni. Líkt og hjá öðrum bæjarfulltrúum sem mætt hafa í pottinn var líflegt spjall um bæjarmálefnin og margir sem nýttu sér tækifærið að spjalla við bæjarfulltrúann.
Síðasti bæjarfulltrúinn sem mætir í heita pottinn í menningarvikunni er Sigmar Eðvardsson en hann mætir á morgun, föstudag.
Á dagskrá menningarvikunnar í dag er að listastofa Helgu að Vörðustundi 1 verður opin frá kl. 13-18 en þarna er hægt að upplifa myndlistarfólk við vinnu sína.
Kl. 20:00 verður bæjarsýning á leikriti grunnskólans, Ýkt kominn yfir þig. Þá verður langur fimmtudagur hjá Bókabúðinni, Palómu og Hárhorninu en opið verður í verslunarmiðstöðinni til kl. 21.