Grindvísku fyrirtćkin Hjá Höllu og Bláa Lóniđ eru ţjónustufyrirtćki ársins á Keflavíkurflugvelli

  • Fréttir
  • 3. desember 2020

Bláa lónið og Hjá Höllu fengu þjónustuverðlaun Keflavíkurflugvallar en verðlaunin voru nýverið afhent í starfsstöðvum fyrirtækjanna. Í ári hlýtur Bláa lónið þjónustuverðlaun verslana og Hjá Höllu fær þjónustuverðlaun veitingastaða. Niðurstaðan nú, sem og áður, byggir á markaðsrannsóknum og könnunum sem gerðar eru á Keflavíkurflugvelli.

Isavia hefur á undanförnum árum veitt rekstraraðilum á Keflavíkurflugvelli verðlaun fyrir þá framúrskarandi þjónustu sem þeir veita. Veitingastaðir og verslanir fá verðlaun fyrir að skara fram úr í þjónustu við farþega sem fara um flugvöllinn.

Horft er til þess hvort vörur og upplýsingar um verð séu aðgengilegar og litið til þess hvernig afgreiðslufólk nálgast viðskiptavini.

Isavia leggur mikla áherslu á góða þjónustu við ferðafólk. Rekstraraðilar, sem eru í beinum tengslum við farþega sem fara um flugstöðina, eru hvattir til að tryggja sem besta þjónustu. Liður í því eru sérstök þjónustunámskeið og verðlaun sem veitt eru fyrir vel unnin störf.

Við óskum þessum flottu fyrirtækjum innilega til hamingju með verðlaunin og viðurkenninguna!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!