Það gleðjast líklega margir yfir nýjum tilslökunum á íþrótta- og heilsuræktarstarfssemi en ný reglugerð hefur verið birt þar sem létt er á takmörkunum. Nú má aftur stunda heilsurækt innandyra ef um skipulagða hóptíma er að ræða og allir þátttakendur skráðir. Hér fyrir neðan má sjá reglugerðina sem er í gildi utan höfuðborgarsvæðisins.
Íþróttir og keppnir utan höfuðborgarsvæðis:
• Þrátt fyrir 2 metra nálægðartakmörk eru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), en virða skal 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir 20 manna fjöldatakmörk er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum á vegum ÍSÍ. Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum.
• Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.