Grindavík Íslandsmeistari A-liđa í 5. flokki karla

  • Fréttir
  • 14. september 2020

Grindavík er Íslandsmeistari A-liða í 5. flokki karla eftir 3-2 sigur gegn Breiðabliki í hörkuleik sem fram fór á Grindavíkurvelli sl. föstudag. Óhætt er að segja að um sé að ræða tvö bestu lið landsins í þessum aldursflokki en þessi sömu lið mættust í úrslitum á N1 mótinu fyrr í sumar þar sem Breiðablik hafði betur.

Meðfylgjandi myndband er sett saman af knattspyrnudeildinni þar sem sjá má skemmtileg augnablik úr leiknum. 

Umgjörðin í kringum úrslitaleikinn var öll til fyrirmyndar. Settur upp var sérstakur 8 manna völlur fyrir framan stúkuna á aðavellinum í Grindavík. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á Grindavíkurvöll til að fylgjast með leiknum sem einnig var sýndur í beinni á GrindavíkTV.

Blikar komust yfir snemma leiks en Grindavík jafnaði leikinn með marki frá Andra Karli Júlíussyni Hammer. Staðan 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik komst Grindavík yfir með frábæru skallamarki frá Eysteini Rúnarssyni. Blikar jöfnuðu leikinn og var gríðarleg spenna á Grindavíkurvelli. Þegar skammt var til leiksloka fékk Grindavík dæmda vítaspyrnu. Eysteinn Rúnarsson steig á punktinn og skoraði örugglega. Blikar reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn en allt kom fyrir ekki og Grindavík fagnaði verðskulduðum sigri.

Helgi Mikael Jónasson dæmdi leikinn og afhenti Jónas Karl Þórhallson, fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, sigurliðinu Íslandsmeistaratitilinn.

Við óskum 5. flokki í Grindavík hjartanlega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn!

Íslandsmeistaralið Grindavíkur 2020:
Leikmenn:
Arnar Eyfjörð Jóhannsson
Orri Sveinn Á. Öfjörð
Sölvi Snær Ásgeirsson
Breki Þór Helgason
Hafliði Brian Sigurðsson
Helgi Hafsteinn Jóhannsson
Andri Karl Júlíusson Hammer
Reynir Sæberg Hjartarson
Caue Da Costa Oliveira
Eysteinn Rúnarsson

Þjálfarar:
Anton Ingi Rúnarsson
Nihad Hasecic 

Mynd og upplýsingar af vef UMFG


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir