Grindavíkurbær hefur að undanförnu unnið að hönnun á viðbyggingu við Hópsskóla, sem er 2. áfangi. Byggingarnefnd hefur unnið að verkefninu með hönnuðum, í samráði við stjórnendur grunnskólans. Um er að ræða 1.100 m² byggingu á einni hæð auk þess verður kjallari undir hluta byggingar.
Í viðbyggingu verða m.a. fjórar heimastofur ásamt fjórum öðrum stofum fyrir textílmennt, myndmennt, heimilisfræði og smíði.
Viðbyggingin mun tengjast núverandi skóla að austanverðu og byggjast til suðurs, í átt að Hópinu.
Hönnun er á lokastigi og verður verkið boðið út í sumar. Hönnuðir eru Kollgáta og VSÓ ráðgjöf.
Efst má sjá norðurhlið viðbyggingar
Grunnmynd viðbyggingar
Austurhlið
Vestuhlið viðbygginar
Skipulag- og umhverfissvið 420 1100
grindavik@grindavik.is
Sviðsstjóri er Atli Geir Júlíusson
Netfang: atligeir@grindavik.is