Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.
Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp frábæra sýningu byggða á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.
Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.
Bakkabræður í Grindavík í sumar!
Þriðjudaginn 11. ágúst kl 18:00 á túninu við Grindavíkurkirkju.
Miðaverð 2900 krónur, frítt fyrir 2ja ára og yngri.
Vegna fjöldatakmarkanna hvetjum við fólk til að tryggja sér miða fyrirfram á tix.is
Leikhópurinn Lotta fylgir að sjálfsögðu öllum tilmælum sóttvarnalæknis. Við höfum því sett saman leikáætlun fyrir næstu sýningar af Bakkabræðrum.
Við getum gert þetta öll saman, hlökkum til að sjá ykkur!