Í boði er 100% staða fyrir konu eða tvær 50% stöður þar sem bæði kyn eru hvött til að sækja um. Mikilvægt að taka fram í umsókn hvaða starfshlutfall er óskað eftir
Umsóknarfrestur er til 5.ágúst
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15.ágúst.
Íþróttamannvirkin er tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi. Starfið er fyrir þá sem hafa ánægju af því að umgangast börn og unglinga og þjónusta viðskiptavini.
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar eru tveir íþróttasalir, sundlaug, fótboltavellir, hópið, Gym heilsa, og aðstaða fyrir dans, pílu, júdó og taekwondo ásamt samkomu og fundaraðstöðinni Gjánni.
Helstu verkefni og ábyrgð.
-Stuðla að því að gestir íþróttamannvirkjanna finni fyrir öryggi og ánægju með þjónustuna
-Framfylgja öryggis- og umgengnisreglum
-Þrif og minniháttar viðgerðir og viðhald
-Klefavarsla
-Hjálpa börnum að upplifa sig velkominn og örugg í íþróttamannvirkjunum
-Aðstoða gesti eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
-20 ára eða eldri
-Góð almenn menntun og reynsla sem nýtist í starfi
-Jákvætt viðhorf, góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
-Reynsla og ánægja að vinna með börnum og unglingum
-Stundvísi
-Almenn tæknikunnátta æskileg
-Þátttaka á námskeiði í skyndihjálp og björgun úr laug ásamt því að standast hæfnispróf laugarvarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði
-Hreint sakavottorð
-Laun eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og starfsmannafélags Suðurnesja.
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og stutt greinagerð um ástæður þess að viðkomandi vill starfa í íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Árni Ólafsson forstöðumaður Íþróttamannvirkja Grindavíkurbæjar. Netfangið hans er: Joi@grindavik.is