Laugardaginn 25. júlí verður heldur betur fjör á Fish House. Þá verður alþjóðlegur stórviðburður er Opið Svið verður haldið í hvorki meira né minna en 50. skiptið í Grindavík! Þessi viðburður hefur reynst ótrúlega vinsæll og nú er um að gera að láta sig ekki vanta og taka nokkur létt lög og að sjálfsögðu dansspor á splunkunýju dansgólfi á Fish House.
Að vanda verður það hljómsveitin 3/4 sem leikur við hvern sinn fingur en það eru þeir Halldór Lárusson, Ólafur Þór Ólafsson og Þorgils Björgvinsson.
Fjörið hefst kl.20:00 og stendur til kl.23:00 Frítt inn!