Opiđ fyrir skráningu í Skólasel

  • Fréttir
  • 13. maí 2020

Skráning er hafin í Skólsel fyrir komandi vetur og fer hún fram í gegnum íbúagátt Grindavíkurbæjar. Skráning fyrir veturinn 2020-2021 verður opin til og með 15. júní. Börn skráð eftir þann tíma fara á biðlista. Í Skólaseli er boðið upp á skóladagvist fyrir nemendur í 1. - 3. bekk. Þar gefst foreldrum tækifæri til að lengja veru barna sinna í skólanum eftir að kennslu lýkur til kl: 16:00. Einnig er hægt að kaupa 15 mínútur aukalega, eða til 16:15.

Markmið starfsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins, foreldra og atvinnulífs með því að skapa börnunum öruggan og notalegan samastað að skóla loknum. Dagurinn skiptist í frjálsan leik úti og inni og skipulagt starf svo sem föndur, leiki ofl. Lögð er áhersla á friðsamleg og jákvæð samskipti barna og fullorðinna og að dvölin geti verið lærdómsrík og skemmtileg.

Lokað er í vetrar-, jóla- og páskafríi, einnig á árshátíðardegi og vorgleði. Á öðrum skóladögum, þar sem vikið er frá venjulegu skipulagi s.s. á öskudegi og þemadögum opnar Skólasel um leið og dagskrá skóladagsins lýkur. Lokað er á starfsdögum.

Gjaldskrá skólasels er hér fyrir neðan. Greiða þarf fyrirfram hvern mánuð. Boðið er upp á hressingu. Verð á hressingu er 250 kr. fyrir hvern dag vistunar. 

Allar upplýsingar fást hjá Sigurbjörgu umsjónarmanni Skólasels í síma 6607321 eða á póstfangið sigurbjorg@grindavik.is til 9. júní og eftir 10. ágúst.

Reglur um þjónustu frístundaheimilis við Grunnskóla Grindavíkur

Hægt er að kaupa áskrift að Skólaselinu samkvæmt eftirfarandi:

Allir dagar til kl. 15:00 - (13.500 kr.- 1.ágúst 2020) + síðdegishressing
Allir dagar til kl. 16:00 - (19.770 kr.- 1.ágúst 2020) + síðdegishressing
Hægt er að kaupa 15 mínútur aukalega frá 14:00 - 16:00. Verð: 160 kr.
Síðdegishressing 250 kr. (1.ágúst 2020)

Afsláttarreglur, gilda með leikskóla og vistun hjá dagforeldri

Systkinaafsl. 2. barn  35%
Systkinaafsl. 3. barn 70%
Systkinaafsl. 4. barn og fleiri 100%


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir