Sjóarinn síkáti fer ekki fram í ár

  • Sjóarinn síkáti
  • 21. apríl 2020

Undanfarna mánuði hafa Grindvíkingar undirbúið Sjóarann síkáta, sjómanna- og fjölskylduhátíð, sem fram átti að fara í 25 sinn um sjómannadagshelgina í ár. Hátíðin hefur í gegnum tíðina verið vel sótt og þúsundir gesta heimsótt Grindavík þessa helgi.

Einn megintilgangur hátíðarinnar er að stuðla að samveru Grindvíkinga og gesta. Erfitt er að hugsa sér að Sjóarinn síkáti fari fram með öðrum hætti en að fólk komi saman og skemmti sér. Í kjölfar víðtæks samráðs við helstu hagsmunaaðila hátíðarinnar hefur verið ákveðið að Sjóarinn síkáti fari ekki fram í ár í ljósi aðstæðna í samfélaginu.

Þó svo ekki fari fram hátíðardagskrá með hefðbundnum hætti munu aðstandendur Sjóarans síkáta leitast við að brjóta upp hversdagsleikann síðar á árinu. Grindvíkingar eru þekktir fyrir að sýna samstöðu þegar á reynir og munu saman sigla í gegnum það ástand sem nú ríkir.

Sjáumst á Sjóaranum síkáta 2021!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir