Hluta endurvinnsluefnis verđur brennt. Mikilvćgt ađ halda áfram ađ flokka

  • Fréttir
  • 27. mars 2020

Umhverfisstofnun hefur það hlutverk, samkvæmt landsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldurs, að gera áætlun um meðhöndlun úrgangs vegna smithættu af sorpi. Nú þegar lýst hefur verið yfir neyðarstigi hafa starfsmenn Kölku gripið til ýmissa ráðstafana til að starfsemin mæti kröfum þeirra verklagsreglna sem stofnunin hefur gefið út. Verklagsreglurnar fela m.a. í sér aukna almenna aðgát, aukin þrif og notkun persónuhlífa. 
 
Í Kölku hefur þegar verið byrjað að brenna hluta þess endurvinnsluefnis, m.a. úr grænum tunnum íbúa á Suðurnesjum, sem berst til þeirra. Efnið úr grænu tunnunni er alla jafna unnið áfram hjá samstarfsaðilum Kölku og er handfjatlað af starfsfólki. Hefur því verið ákveðið að hluti þessa efnis skuli fara í brennslu. Eins og fram hefur komið í fréttum virðist COVID-19 veiran geta lifað býsna lengi á hörðu yfirborði eins og t.d. plasti og pappa. Það efni sem áfram fer til endurvinnslu er geymt í tvær vikur áður en það er meðhöndlað og fyllstu varúðar er gætt við vinnu við það. 
 
Starfsfólk Kölku vill beina þeim tilmælum til fólks að hætta ekki að flokka í sínar tunnur þótt þessi staða sé uppi. Mikilvægt sé að halda tunnunum hreinum og eiga þann möguleika að geyma eins mikið efni og kostur er, til vinnslu síðar. Hvað varðar það efni sem verður brennt þá er mikill kostur að hafa það sem mest aðskilið frá öðru sorpi svo hægt sé að skammta það inn í brennsluna í hæfilegum skömmtum. Það snýst bæði um stjórnun hitastigs í ofni og eftirbrennslu og að halda óæskilegum efnum í útblæstri í innan marka. 
 
Kalka vill ítreka að þessi ráðstöfun er tímabundin og um leið og aðstæður leyfa verður þessari brennslu hætt. Stefnan er að allt endurvinnanlegt efni fari í endurvinnslu og henni verður fylgt áfram. Þessar tímabundnu ráðstafanir stafa eingöngu af því ástandi sem er uppi vegna COVID-19 og er, eins og margsinnis hefur komið fram, fordæmalaust. 
 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!