Félagsþjónustu- og fræðslusvið Grindavíkurbæjar auglýsir eftir traustum einstaklingum/fjölskyldum til að sinna hlutverki stuðningsfjölskyldu. Hlutverk stuðningsfjölskyldu snýr meðal annars að því að taka fatlað barn í sína umsjá í skamman tíma með það að markmiði að létta álagi á fjölskyldur barna með sérþarfir. Um er að ræða 2-3 sólarhringa í mánuði.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna eru verktakagreiðslur og flokkast eftir umönnunarþörf barns og fötlun.
Allar nánari upplýsingar veitir Hlín Sigurþórsdóttir í síma 426-9909 eða á netfanginu hlin.s@grindavik.is