Álagningu fasteignagjalda 2020 er lokið. Álagningarseðlar fyrir árið 2020 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti.
Fasteignaeigendur geta nálgast álagningarseðilinn á www.island.is með því að skrá sig inn, annaðhvort með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Íslykil mál nálgast á www.islykill.is.
Grindavíkurbær mun þó senda einstaklingum 67 ára og eldri og fyrirtækjum álagningarseðil í bréfapósti.
Álagningarákvæði
Fasteignaskattur: Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4 frá 1995 með síðari breytingum.
3. gr. laganna:
a) Allt að 0,5% af fasteignamati: Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, hesthús, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
b) 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Sjúkrastofnanir, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.
c) Allt að 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Heimilt er sveitarstjórn að hækka prósentur tilgreindar í a og c liðum um allt að 25%.
Önnur gjöld eru ákveðin árlega af bæjarstjórn.
Undanþegin fasteignaskatti eru kirkjur, bænahús, safnahús og hús erlendra ríkja, sbr. 5 grein laganna.
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Elli- og örorkulífeyrisþegar eiga rétt á afslætti á fasteignaskatti og holræsagjaldi samkvæmt reglum sem samþykktar voru í bæjarstjórn 24. september 2013. Reglurnar má nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar undir "Stjórnsýsla", "Samþykktir/Reglugerðir/Stefnur".
Afslátturinn er tekjutengdur og skila þarf inn staðfestu skattframtali á álagningarári vegna tekna og eigna fyrra árs. Tekjuviðmið eftirfarandi: