Hver er Grindvíkingur ársins 2019? - Ábendingar óskast

  • Fréttir
  • 13. desember 2019

Grindvíkingur ársins var útnefndur í fyrsta sinn árið 2009. Tilgangurinn er að þakka íbúum í Grindavík fyrir þeirra framlag til þess að gera góðan bæ betri, m.a. með fyrirmyndar háttsemi eða atferli. Til greina koma þeir sem unnið hafa óeigingjarnt starf á undanförnum árum og haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt.

Nú er óskað eftir ábendingum frá íbúum í ellefta sinn. Ábendingar um íbúa sem eru öðrum til fyrirmyndar má senda á netfangið heimasidan@grindavik.is fyrir 15. desember ásamt rökstuðningi hvers vegna viðkomandi eigi heiðurinn skilið.

Grindvíkingur ársins: 
2009 Davíð Arthur Friðriksson og Sigurður Halldórsson
2010 Ásta Birna Ólafsdóttir
2011 Matthías Grindvík Guðmundsson
2012 Útsvarslið Grindavíkur; Agnar Steinarsson, Daníel Pálmason og Margrét Pálsdóttir
2013 Otti Sigmarsson
2014 Alexander Birgir Björnsson og fjölskylda
2015 Þorgerður Elíasdóttir
2016 Margrét S. Sigurðardóttir
2017 Arnar Már Ólafsson

2018 Bjarni Ólason (meðfylgjandi mynd)


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál