Ljósin á jólatré Grindavíkurbæjar verða tendruð í dag, föstudaginn 29. nóvember kl. 17:30, á torginu fyrir framan Íþróttamiðstöðina. Nemendur úr Tónlistarskóla Grindavíkur leika jólalög í anddyri hússins og jólasveinarnir kíkja í heimsókn.
Unglingadeildin Hafbjörg mun bjóða gestum upp á heitt súkkulaði og piparkökur.
Allir íbúar Grindavíkur og gestir þeirra eru hjartanlega velkomnir!