Styttist í Fjörugan föstudag

  • Fréttir
  • 14. nóvember 2019

Fjörugur föstudagur fer fram á Hafnargötunni, föstudaginn 22. nóvember frá kl. 17:00-20:00. Þá bjóða fyrirtækin íbúum í heimsókn en þetta verður í áttunda sinn sem hann er haldinn. Hinir ýmsu þjónustu- og verslunaraðilar við Hafnargötuna verða með góð tilboð og bjóða  einnig fólk velkomið að kíkja í heimsókn og sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða.  

Kynningarbæklingur er væntanlegur í hús fljótlega þar sem hægt verður að kynna sér hvað verður í boði á þessum vinsæla viðburði, bæklingurinn mun einning verða aðgengilegur hér á heimasíðunni.  

Tónlist, kynningar, afslættir og margt fleira í boði.  
 
Munið að klæða ykkur eftir veðri :)  

Við hlökkum til að sjá ykkur hress og kát! 

Þjónustu- og verslunaraðilar við Hafnargötuna 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir