Jón Axel er á sögufrćgum Naismith lista

  • Körfubolti
  • 7. nóvember 2019

Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson er á listanum yfir þá fimmtíu sem menn eiga að fylgjast með í Bandaríkjunum í vetur. Þetta kemur fram á fréttavef Vísis. 

"Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson er á Naismith listanum fyrir komandi tímabil í bandaríska háskólakörfuboltanum en þar eru samankomnir þeir fimmtíu leikmenn sem eru bundnar mestar væntingar til í vetur.

Jón Axel er að hefja sitt fjórða og síðasta ár með Davidson háskólanum en hann hefur slegið í gegn með frammistöðu sinni undanfarin tímabil.

Það er ljóst að bakvarðarsveit Davidson liðsins ætti að vera í fínu lagi í vetur því félagi Jóns Axels, Kellan Grady, er einnig á fyrrnefndum Naismith lista." Segir á fréttavef Vísis.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir