Grindvíkingurinn Sólrún Alda Waldorff slasaðist alvarlega aðfaranótt miðvikudags sl. þegar henni var bjargað út úr brennandi kjallaraíbúð í Mávahlíðinni í Reykjavík. Vinkonur Sólrúnar hér í Grindavík ætla að halda bænastund fyrir hana í Grindavíkurkirkju í kvöld klukkan 20:30 en Sólrún Alda berst fyrir lífi sínu og hefur nú verið flutt erlendis á sjúkrahús til frekari aðhlynningar.
Eftirfarandi skilaboð hafa vinkonur Sólrúnar látið berast á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem þær hvetja til þess að sameinast verði í kirkjunni og bæði Sólrúnu og fjölskyldu sendur styrkur á erfiðum tima.
Þórunn Alda Gylfadóttir móðir Sólrúnar Öldu sagði ástandið mjög alvarlegt. Sólrún væri í lífshættu og tekin væri ein klukkustund í einu. Allar bænir myndu hjálpa.