Srdjan Tufegdzic, kallaður Túfa, er hættur sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur í knattspyrnu en félagið sendi út yfirlýsingu þess efnis í dag.
Túfa tók við þjálfun liðsins síðasta vetur og gerði þriggja ára samning við félagið en gengið var ekki gott í sumar og Grindavík féll úr efstu deild, Pepsi-Max deildinni.
Tufegdzic kemur frá Serbíu en hann var hjá KA síðan árið 2005. Hann kom KA upp í efstu deild árið 2016 og undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti tvö ár í röð áður en hann tók við Grindavík.
Hér má sjá tilkynninguna frá Knattspyrnudeild Grindavíkur:
Grindavík og Srdjan Tufegdzic (Túfa) þjálfari karlaliðs meistaraflokks Grindavíkur hafa gert með sér samkomulag um að Túfa muni ekki halda áfram þjálfun liðsins á komandi tímabili. Grindavík þakkar Túfa fyrir hans störf og óskar honum og hans fjölskyldu velfarnaðar.
Stjórn Knd Grindavíkur
Ljósmynd/Sigfús Gunnar