Heilsu- og forvarnarvikan byrjar hjá okkur í dag og mun bókasafnið bjóða upp á léttan jógatíma með Jónu Kristínu jógakennara, sem kennir jóga í Lífsstíl í Keflavík. Tíminn verður frá 16:30-17:30.
Annar sambærilegur tími verður á fimmtudaginn á sama tíma.
Áhugasamir eru beðnir um að taka með sér jógadýnu ef kostur er.
Á miðvikudaginn kl. 20:00 kemur Sirrý Arnardóttir svo til okkar til að fjalla um bók sína "Þegar kona brotnar" og passar það vel inn í forvarnarhluta vikunnar.