Framkvæmdir við göng undir Víkurbraut til móts við Suðurhóp ganga vel en undirgöngin eru farin að taka á sig skýrari mynd nú þegar búið er að steypa upp veggina. Á næstu dögum verður klárað að slá upp og steypa brúardekkið. Áætlað er að opna fyrir umferð yfir göngin í lok október. Meðfylgjandi myndir voru teknar í blíðviðrinu í gær, sunnudag.