Laus störf viđ leikskólann Laut

  • Fréttir
  • 12. september 2019

Leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík sem fyrst.  Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga. 
Leikskólinn er  fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára.

Við erum ,,Skóli á grænni grein" og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði , hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu hans.


Hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg. 
Færni í samskiptum. 
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. 
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.


Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra  á netfangið frida@grindavik.is  
Endurnýja þarf eldri umsóknir.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!