39. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn á efri hæð Kvikunnar, 11. september 2019 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Klara Bjarnadóttir, aðalmaður, Teresa Björnsdóttir, aðalmaður, Sigríður Etna Marinósdóttir, formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, varamaður, Auður Arna Guðfinnsdóttir, varamaður, Kári Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi og Kristín María Birgisdóttir, Upplýsinga- og markaðsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Krisín María Birgisdóttir, Upplýsinga- og markaðsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Þjónustuskilti við innkomu bæjarins - 1906035
Farið yfir hugmyndir að texta og myndum sem munu fara á nýtt þjónustuskilti við bæjardyrnar. Nefndin telur mikilvægt að hugað sé að möguleika á að setja QR-kóða á skiltið til að fá frekari upplýsingar um staði og afþreyingu í Grindavik.
2. Gönguleið um sjávartengdar minjar - 1810058
Nefndin lýsir yfir ánægju með hugmyndina og fyrstu drög að gönguleið um sjávartengdar minjar. Nefndin leggur áherlsu á að öryggi þeirra sem um gönguleiðina fari verði tryggt með gangbrautum og skýrum merkingum.
3. Framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta - 1907007
Nefndin fagnar því að fram sé komin framtíðarsýn um Sjóarann síkáta. Skýrslan er vel unnin, með skýr markmið og aðgerðaráætlun.
4. Tjaldsvæði - rekstur 2018 og 2019 - 1909035
Nefndin leggur til að rekstur tjaldsvæðisins verði boðinn út og felur upplýsingar- og markaðsfulltrúa að vinna málið áfram.
5. Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð - 1909016
Nefndin tekur vel í erindi Festu og felur upplýsingar- og markaðsfulltrúa að koma með hugmyndir að mögulegum verkefnum fyrir næsta fund nefndarinnar.
6. Opin og græn svæði - 1905037
Nefndin leggur til að farið verði í áætlunarvinnu um opin græn svæði innan bæjarins. Sú vinna miði að því að svæðin verði aðgengileg og sýnileg. Mikilvægt er að tekið verði mið að hverju svæði fyrir sig og hvernig þau verði nýtt.
7. Stígakerfi bæjarins - 1909011
Nefndin leggur til að unnin verði áætlun um hvernig uppbygging stíga verði háttað.
8. Endurnýjun samstarfssamnings um skógræktarsvæðið við Selskóg - 1906070
Nefndinni líst vel á samninginn og samþykkir hann fyrir sitt leyti.
9. Samráðsfundir við ferðaþjónustuna 2019 - 1901041
4. fundargerð samráðsfundar Grindavík Experience og Grindavíkurbæjar, dags 28. ágúst 2019 lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.