Heilsueflandi samfélag: Samstarfshópur ađ hefja störf

  • Fréttir
  • 22. ágúst 2019

Á síðasta fundi bæjarráðs var samþykkt að skipa sviðsstjóra frístunda- og menningarmála, Eggert Sólberg Jónsson í samstarfshóp um heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum en verkefnið heyrir undir frístunda- og menningarsvið. Suðurnesin eru fyrsta svæðið sem ákveður að starfa saman að Heilsueflandi samfélagi með þessum hætti. Samstarfið mun meðal annars nýtast við undirbúning Sóknaráætlunar Suðurnesja 2020-24.

Mikil fólksfjölgun hefur verið á Suðurnesjum undanfarin ár en svæðið stendur vel hvað varðar ýmsa þætti sem hafa áhrif á vellíðan íbúa. Samkvæmt m.a. Lýðheilsuvísum 2019 eru hins vegar sóknarfæri til að gera betur.

Í samræmi við meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er tilgangur samstarfsins að greina með markvissum hætti stöðuna og sameinast um að leita lausna sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa á Suðurnesjum.

Meðfylgjandi myndir tók Sólborg Guðbrandsdóttir við undirritunina á HSS á dögunum fyrir Víkurfréttir.

Á myndinni efst eru f.v. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, Markús Eiríkur Ingólfsson, forstjóri HSS, Alma D. Möller landlæknir, Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, og Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál