Unnið hefur verið að framkvæmdum vegna undirganga á Víkurbraut við Suðurhóp. Á föstudaginn varð um tíma heitavatnslaust þar sem stofnæð gaf sig. Unnið er að færslu hitaveitustofns fyrir byggingu ganganna og er því þrýstingur hitaveitu lægri en vanalega. Eðlilegur þrýstingur ætti að vera kominn á um miðja næstu viku, þegar búið er að sjóða nýjan stofn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum.