Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmanni til að starfa við íþróttamiðstöðina.
Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla ( kvennaklefa), ræstingar, eftirlit og afgreiðsla. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf 1.okt. 2019
Leitað er að einstaklingi sem hefur
- ríka þjónustulund
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða
Vakin er athygli á því að ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 14. ágúst. 2019 n.k.
Grindavíkurbær