Atli Geir nýr sviđsstjóri skipulagssviđs

  • Fréttir
  • 23. júlí 2019

Atli Geir Júlíusson, verkfræðingur, hefur verið verið ráðinn í starf sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs hjá Grindavíkurbæ. Atli Geir er giftur Gígju Eyjólfsdóttur og saman eiga þau tvö börn, þau Patrek og Hildigunni. 

Atli Geir lauk lauk meistarnámi í umhverfisverkfræði frá Háskóla Íslands vorið 2011. Atli Geir hefur undanfarin fjögur ár starfað hjá Verkfræðistofu Suðurnesja en þar á undan starfaði hann hjá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. 

Með vinnu sinni hefur Atli Geir þjálfað yngri flokka í körfubolta í Grindavík frá árinu 2009 ásamt því að sinna kennslu í Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. 
Atli Geir hefur búið ásamt fjölskyldu sinni í Grindavík sl. 10 ár. 

Við bjóðum Atla Geir velkominn til starfa og til hamingju með nýtt starf!
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir