60. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 15. júlí 2019 og hófst hann kl. 12:00.
Fundinn sátu: Guðmundur L. Pálsson, formaður, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, aðalmaður, Unnar Á Magnússon, varamaður.
Einnig sat fundinn: Atli Geir Júlíusson, sviðstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.
Fundargerð ritaði: Atli Geir Júlíusson, sviðstjóri umhverfis- og skipulagssviðs..
Dagskrá:
1. Bakkalág 17 - Óveruleg deiliskipulagsbreyting - 1907025
Óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna stækkunar byggingarreits Bakkalág 17 um 4m til norðurs .
Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulaginu með fyrirvara um samþykki lóðarhafa að Bakkalág 17.
2. Stamphólsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi - 1907027
Fyrirhugaðar framkvæmdir við útistofu við leikskólann Krók verða til þess að stækka þarf byggingarreit á lóðinni sem kallar á óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að fara í fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram.
3. Hafnargata 11 - umsókn um byggingarleyfi - 1907023
Byggingarleyfi vegna Hafnargötu 11.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
4. Mastur á Þorbirni - Umsókn um byggingarleyfi - 1906044
Isavia óskar eftir byggingarleyfi fyrir steypu á undirstöðum og uppsetningu á 21m háu mastri á Þorbirni. 40m hátt mastur verður fjarlægt af Þorbirni.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
5. Víkurbraut 62 - umsókn um byggingarleyfi - 1907024
Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á 2.hæð Víkurbrautar 62.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
6. Þjóðlenda - breytt mörk Hafnarfjarðarbæjar, breyting á aðalskipulag 2013-2025 og nýtt deiliskipulag fyrir leiðarenda. - 1907020
Skipulagslýsing frá Hafnarfjarðarbæ til kynningar.Efni skipulagslýsingarinnar er breytt mörk sveitarfélagsins, breyting á aðalskipulagi 2013-2025 og nýtt deiliskipulag fyrir leiðarenda.
Athugasemdarfrestur er til 2.ágúst 2019
Máli frestað. Sviðstjóra falið að afla upplýsinga um málið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:40.