Meistaramótið hjá Golfklúbbi Grindavíkur fór fram um helgina á Húsatóftavelli. Þau Svanhvít Helga Hammer og Jón Júlíus Karlsson eru meistarar mótsins en alls var keppt í 8 flokkum og má sjá úrslitin hér fyrir neðan. Gaman er að sjá 3 ættliði vinna til verðlauna en þeir Guðmundur Bjarnason, Friðrik Franz Guðmundsson og Bjarni Andrésson unnu allir sæti í sínum flokki. Guðmundur 3ja sæti í meistaraflokki, Friðrik Franz tók 2. sætið í unglingaflokki og Bjarni vann öldungaflokk.
Sigurvegarar mótsins, Svana og Júlli
Verðlaunahafar í unglingaflokki, f.v. Guðjón Þorsteinsson, Arnór Helgason og Friðrik Franz Guðmundsson.
Meistaraflokkur karla:
Jón Júlíus Karlsson 288
Leifur Guðjónsson 294
Guðmundur Andri Bjarnason 316
Meistaraflokkur kvenna:
Svanhvít Helga Hammer 247
Hildur Guðmundsdóttir 264
Svava Agnarsdóttir 279
1. flokkur karla:
Lárus Guðmundsson 309
Halldór Einir Smárason 316
Helgi Jónas Guðfinnsson 318
2. flokkur karla:
Sigurður Þór Birgisson 316
Guðmundur L. Pálsson 322
Michael Jónsson 330
3. flokkur karla:
Pálmi Hafþór Ingólfsson 362
Jóhann Þröstur Þórisson 371
Guðlaugur Örn Jónsson 389
Opinn flokkur kvenna (punktar):
María Eir Magnúsdóttir 99
Stefanía S. Jónsdóttir 97
Irmý Rós Þorsteinsdóttir 96
Unglingaflokkur:
Arnór Tristan Helgason 331
Friðrik Franz Guðmundsson 372
Guðjón Þorsteinsson 389
Öldungaflokkur:
Bjarni Andrésson 236
Sveinn Þór Ísaksson 243
Guðjón Einarsson 248
Meðfylgjandi mynd er af hluta þess hóps sem hlaut verðlaun á mótinu.