Heilsuleikskólinn Krókur auglýsir eftir starfsmönnum
Heilsuleikskólinn Krókur auglýsir eftir starfsmönnum frá 1. október vegna stækkunar skólans. Eftirtalin störf eru í boði:
- Deildarstjóri
- Leikskólakennarar og/eða uppeldismenntað starfsfólk
- Stuðningsfulltrúa
Heilsuleikskólinn Krókur er sjálfstætt starfandi skóli staðsettur í Grindavík. Skólinn er fjögurra deilda með um 100 börn, 27 starfsmenn og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur og viðmiðum Heilsueflandi leikskóla. Í stefnu skólans er lögð rík áhersla á jákvæða og umhyggjusama skólamenningu og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Unnið er með heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti, frjálsan leik í flæði, umhverfismennt, jóga og núvitund með áherslu á umhyggjusamt námsumhverfi.
Því leitum við að samstarfsfólki sem:
- Er samvinnufúst, lausnarmiðað og sýnir frumkvæði í starfi
- Er tilbúið að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans
- Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum
- Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun
- Er stundvíst, samviskusamt og jákvætt
Menntunar og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg
- Hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum
- Hefur áhuga á að vinna með ungum börnum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Allri sem áhuga hafa á því að tileinka sér okkar starfsaðferðir í jákvæðu og uppbyggjandi skólastarfi eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum svarað.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar veita Hulda Jóhannsdóttir skólastjóri og Bylgja Kristín Héðinsdóttir aðstoðarskólastjóri.
Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn hér.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2019.
AĐRAR FRÉTTIR
Fréttir / 5. desember 2019
Fréttir / 4. desember 2019
Fréttir / 3. desember 2019
Fréttir / 29. nóvember 2019
Fréttir / 28. nóvember 2019
Fréttir / 27. nóvember 2019
Fréttir / 26. nóvember 2019
Fréttir / 26. nóvember 2019
Grunnskólafréttir / 25. nóvember 2019
Fréttir / 25. nóvember 2019
Fréttir / 25. nóvember 2019
Fréttir / 25. nóvember 2019
Fréttir / 25. nóvember 2019
Fréttir / 22. nóvember 2019
Fréttir / 22. nóvember 2019
Fréttir / 22. nóvember 2019
Fréttir / 22. nóvember 2019
Fréttir / 21. nóvember 2019
Fréttir / 21. nóvember 2019