Vinnuskólinn hreinsar fjöruna viđ Grindavík

  • Fréttir
  • 8. júlí 2019

Vinnuskólinn í samráði við Bláa Herinn og Grindavíkurhöfn fór í síðustu viku að hreinsa austanverða sjóvarnargarða við Grindavíkurhöfn.  Afrakstur þess var einn flottrolsbelgur sem var 1910 kg, eitt kar netadræsur, sex kör plast rusl ásamt fjölda af dekkjum og rörum. 

Það er ljóst að hreinsun fjara er eilífðar verkefni. Á meðan hafið er sú ruslakista sem raun ber vitni mun drasl sem þetta skola reglulega á land. Með sameinuðu átaki verður þó hægt að halda þessu í skefjum en fyrst þarf að passa hverju hent er í hafið. Þá mun vonandi plastnotkun vestrænna velferðarsamfélaga fara minnkandi enda ljóst að lífríkinu stafar veruleg ógn af því. 

Meðfylgjandi myndir tók Bergsteinn Ólafsson, umsjónarmaður grænna svæða.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir