Eyþór Ingi verður með tónleika í Grindavík á Fishhouse Bar&Grill í fyrsta sinn á laugardaginn kemur, þann 6. júlí. Í fréttatilkynningu frá Fish House kemur fram að Eyþór Ingi hafi komið víða við í gegnum tíðina bæði einn, með hljómsveitum, í söngleikjum eða öðrum sýningum.
"Eyþór hefur meðal annars gert garðinn frægann með sveitum á borð við Todmobile, Eldberg og nú síðast Rock Paper Sisters. Í þetta sinn kemur hann fram einn síns liðs með gítarinn, píanóið og röddina að vopni. Eyþór hefur einnig getið sér gott orð fyrir að vera mögnuð eftirherma og á það til að blanda þessu saman í góðan kokteil þar sem fólk grætur úr hlátri milli laga.
Tónleikarnir hefjast kl 21:00 takmarkaður miðafjöldi í boði. Sérstakt forsölu tilboð 3.000.kr 3.990.kr við dyrnar."