5 bekkjarsystkin úr Grunnskóla Grindavíkur útskrifast úr MA

  • Fréttir
  • 21. júní 2019

Fimm nemendur fæddir árið 2000, sem voru saman í Grunnskóla Grindavíkur, útskrifuðust úr Menntaskólanum á Akureyri þann 17. júní. Um mjög stóran útskriftarárgang var að ræða þar sem MA var að útskrifa tvo árganga. Annars vegar síðasta árganginn sem tók stúdentsprófið á fjórum árum og hins vegar fyrsta árganginn sem tók stúdentsprófið á þremur árum. Samtals voru þetta 330 nemendur. 

Ekki er algengt að svona margir nemendur úr Grindavík útskrifist á sama tíma frá Menntaskólanum á Akureyri en auk þeirra sem kláruðu á 3 árum þá voru tvö fædd 1999 einnig að klára MA. 

Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrsta skóladaginn þeirra fyrir þremur árum og síðan á sjálfan útskriftardaginn.

Nemendurnir eru frá vinstri, Teitur Leon Gautason, Telma Lind Bjarkadóttir, Belinda Berg Jónsdóttir, Margrét Fríða Hjálmarsdóttir og Kristín Anítudóttir McMillan. 

Þá útskrifuðust einnig Gauti Ragnarsson og Elín Björg Eyjólfsdóttir fædd árið 1999 frá MA. 

Við óskum þeim öllum til hamingju með áfangann. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir