Þrátt fyrir að Sjóarinn síkáti hefjist eftir aðeins eina viku stendur nú yfir undirbúningur vegna hátíðarhalda í tilefni af 17. júní. Þeim sem vilja koma að efni í dagskrá hátíðarhaldanna er bent á að hafa samband við Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs gegnum netfangið eggert@grindavik.is.