Bæjarráð hefur samþykkt að umbuna starfsmönnum sínum fyrir góða rekstarafkomu. Allir starfsmenn sem voru með gildan ráðningarsamning í april 2019, þ.e. þegar niðurstaða ársins var birt fá 10.000 kr gjafabréf. Gjafabréfið verður með sama sniði og jólagjöfin hefur verið, þ.e. hægt verður að nota bréfið í fyrirtækjum í Grindavík sem virkar sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Grindavík. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Grindavíkurbæjar gegn framvísun gjafabréfsins.
Grindavíkurbær biður þau fyrirtæki sem hafa áhuga á því að vera með að senda tölvupóst á jont@grindavik.is í síðasta lagi þriðjudaginn 28. maí nk.
Gert er ráð fyrir að senda bréfin út í byrjun júní þegar bæjarstjórn hefur samþykkt viðaukann á maífundi sínum.