57. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 16. maí 2019 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu: Guðmundur L. Pálsson, formaður, Ólafur Már Guðmundsson, aðalmaður, Anton Kristinn Guðmundsson, aðalmaður, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, aðalmaður og Unnar Á Magnússon, varamaður.
Fundargerð ritaði: Sigurður Ólafsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030. - 1501158
Hagsmunaaðilar mættu á fund Skipulagsnefndar Grindavíkurbæjar vegna endurskoðunar Aðalskipulags Grindavíkurbæjar 2010 - 2030. Frá landeigendum komu Hörður Sigurðsson frá Hrauni, Hermann Ólafsson frá landeigendum að óskiptu landi Þórkötlustaða og Guðmundur Einarsson frá landeigendum að Ísólfsskála, mættu þeir kl. 16:15 inn á fund skipulagsnefndar. Hagsmunaaðilarnir Ævar Ásgeirsson og Valgerður S. Valmundardóttir frá Hestamannafélaginu Brimfaxa mættu kl. 17:30. Þessir hagsmunaaðilar fengu kynningu frá Brynju Dögg Ingólfsdóttur skipulagsfræðingi frá verkfræðistofunni EFLU, vegna vinnu við endurskoðun Aðalskipulagsins. Efni kynningarinnar var Stígar og slóðar. Fundurinn var haldinn vegna samráðs milli Grindavíkurbæjar og hagsmunaaðila. Í framhaldi að lokinni kynningu Brynju Daggar voru ýmsar tillögur og hugmyndir ræddar nánar milli aðila.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50.