Ungmennaráð Grindavíkur mætti til fundar með bæjarstjórn í gær. Ungmennaráðsfulltrúar kynntu þar hvað þau hafa verið að gera á starfsárinu sem nú er að ljúka. Fulltrúar ungmennaráðs lögðu fram tvær tillögur á fundinum. Annars vegar tillögu um aukna aðkomu ungmennaráðs að málum sem tengjast ungmennum og hins vegar tillögu um fleiri samráðsfundi ungmennaráðs og bæjarstjórnar.
Fundurinn gekk mjög vel og tók bæjarráð vel í tillögurnar sem lagðar voru fram. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs var falið að vinna áfram með tillögurnar.
Það er ljóst að Grindavík hefur öflugt ráð sem vinnur í þágu ungmenna í sveitarfélaginu. Það verður gaman að fylgjast með þeim áfram en ráðið hefur verið mjög öflugt í að vinna samfélaginu sínu gagn m.a. með umferðaröryggisþingi sem þau héldu sl. haust undir yfirskriftinnu "Umferðaröryggi - okkar mál!" þar sem þingið fékk mikla athygli og umfjallanir birtust í helstu fjölmiðlum landsins. Reyndar er þar aðeins farið rangt með nafn formannsins og hún sögð heita Karen en ekki Karin.
Meðfylgjandi mynd var tekin á fundinum í gær og þar má sjá fulltrúa ungmennaráðs ásamt bæjarfulltrúum og frístundaleiðbeinanda