Sett inn ţann 06.02.03
- segir rekstrarstjóri Samherja hf. í Grindavík
Ţetta er auđvitađ mjög alvarlegt mál og sannkölluđ heppni ađ ekkert skuli hafa komiđ upp á vegna ţessa, segir Óskar Ćvarsson rekstrarstjóri Samherja hf. í Grindavík í tilefni af ţví ađ fundist hefur gríđarstór steinn í innsiglingunni til Grindavíkur.
Nokkur af stćrstu fiskiskipum landsmanna, s.s.Vilhelm Ţorsteinsson EA, Baldvin Ţorsteinsson EA og Ţorsteinn EA, koma reglulega međ afla sem landađ er hjá fiskimjölsverksmiđju Samherja hf. í Grindavík. Til marks um stćrđ ţessara skipa er Vilhelm Ţorsteinsson EA rétt tćplega 16 metrar á breidd og djúpristan er rúmir 9 metrar. Af heimaskipunum er frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK einna fyrirferđarmestur, 11 metrar á breidd og međ djúpristu upp á tćpa 7,50 metra. Vćntanlega hefur veriđ stutt í steininn ţegar Vilhelmi Ţorsteinssyni EA hefur veriđ siglt inn í höfnina ţví hann er ađeins um 9 metra utan línunnar sem siglt er eftir um innsiglinguna.
Óskar segir í samtali viđ Skip.is ađ hann hafi aldrei heyrt um ađ skip hafi steytt á steininum en ţađ verđi ađ teljast heppni eđa sé til marks um ţađ hve skipstjórar skipanna séu flinkir.
Vilhelm Ţorsteinsson EA hefur örugglega komiđ hingađ 50 sinnum međ afla og ţađ má ţví segja ađ skipstjórarnir séu orđnir heimavanir. Hins vegar er innsiglingin mjög ţröng og ţađ er mikilvćgt ađ fylgja merkjunum. Ţađ hafa menn greinilega gert, segir Óskar en hann segir ađ steininn verđi fjarlćgđur mjög fljótlega.
Eiríkur Dagbjartsson, útgerđarstjóri hjá Ţorbirni Fiskanesi hf., sagđi ađ fréttir af steininum í innsiglunni hefđu komiđ honum og öđrum Grindvíkingum á óvart en hann hefđi aldrei heyrt af ţví ađ skip hafi strokist viđ steininn.