Páskabingó Kvenfélags Grindavíkur verður haldið næstkomandi sunnudag, 7. apríl. Að venju verður þetta tvískipt, barnabingó verður kl. 14:00 á sal Grunnskóla Grindavíkur. Fullorðinsbingó fer fram um kvöldið kl. 20:00
Kvenfélagið áréttar að aðeins er tekið við peningum því ekki verður posi á staðnum.
Páska- og jólabingó er ein af stærstu fjáröflunarleiðum Kvenfélags Grindavíkur. Kvenfélagskonur hafa í gegnum tíðina verið ötular að styrkja góð málefni og með gleði lagt á sig óeigingjarna sjálboðavinnu til hagsbóta fyrir almenning. Með góðum stuðningi við bingóin m.a. frá fyrirtækjum höfum við getað stutt við velferð bæjarbúa í Grindavík með góðum gjöfum til einstaklinga, á stofnanir og í sjúkrabíl/slökkvilið.
Fjölmennum í bingó og styðjum gott málefni!