Opiđ fyrir skráningu í Vinnuskólann 2019

  • Fréttir
  • 29. mars 2019

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Vinnuskóla Grindavíkur í sumar. Vinnuskólinn er fyrir 14-17 ára ungmenni fædd árin 2002, 2003, 2004 og 2005, þ.e. fyrir 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla. 

Aðeins verður tekið við rafrænum skráningum og mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega. Einnig þarf að skila inn leyfisbréfi undirrituðu af forráðamanni í Þrumuna eða á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62. Skráningu lýkur föstudaginn 12. apríl. Skráning fer fram hér.

Vinnuskólinn býður fyrst og fremst upp á hefðbundin umhirðustörf. Hins vegar taka einstaka félög og stofnanir til sín nemendur sem þekkja vel til. Nemendur sinna þá aðstoð á leikjanámskeiðum eða umhirðu íþróttamannvirkja. Þá sinna nemendur einnig sértækum verkefnum ásamt umhirðustörfum.

Vinnutími og launakjör

14 ára, úr 8. bekk:
Val milli tveggja tímabila:
a) 4. júní – 11. júlí
b) 18. júní – 23. júlí
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00 - 12:00. Fjöldi vinnustunda 84.
Laun: Kr. 968,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Þrif, rakstur og gróður umhirða og önnur tilfallandi verkefni.

15 ára, úr 9. bekk:
Val milli tveggja tímabila:
a) 4. júní – 12. júlí (auðlindaskóli 24.-27. júní)
b) 18. júní – 24. júlí (auðlindaskóli 24.-27. júní)
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-12:00 og 13:00-15:30. Fjöldi vinnustunda 160,5.
Laun: Kr. 1.162,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Gróðursetning, áburðargjöf, þrif, sláttur, rakstur og gróður umhirða. Aðstoð við leikjanámskeið og önnur tilfallandi verkefni.

16 ára, úr 10. bekk:
Tímabil: 4. júní – 9. ágúst (frí 29. júlí – 7. ágúst)
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-12:00 og 13:00-15:30. Fjöldi vinnustunda 277.
Laun: Kr. 1.355,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Sláttur, rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun, aðstoð við leikjanámskeið og önnur tilfallandi verkefni.

17 ára, úr 1. bekk framhaldsskóla:
Tímabil: 27. maí - 9. ágúst (frí 29. júlí – 7. ágúst)
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08.00-12.00 og 13.00-15.30. Fjöldi vinnustunda 259,5.
Laun: Kr. 1.743,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Sláttur,rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun, aðstoð við leikjanámskeið og önnur tilfallandi verkefni.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!