Dagskrá Menningarviku 9.-17. mars 2019

  • Menningarfréttir
  • 12. mars 2019

Menningarvika Grindavíkur er nú haldin í ellefta sinn og að vanda er dagskráin fjölbreytt. Formleg setning hátíðarinnar verður í Grindavíkurkirkju laugardaginn 9. mars kl. 17:00. Dagskrá Menningarviku er jafnframt að finna í Járngerði sem að dreift verður í hús á næstu dögum.

ALLA VIKUNA
10:00-17:00 Kvikan, SALTFISKSETRIÐ, JARÐORKA OG GUÐBERGSSTOFA.
Grunnsýningar Kvikunnar opnar gestum.

10:00-17:00 Kvikan, SJÁLFSMYNDIR Á DRAUMASTAÐNUM.
Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Grindavíkur sýna verk sín sem unnin voru í myndment og textílment.

10:00-17:00 Kvikan, KÆRLEIKUR.
Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna unnin í samstarfi við Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur, myndhöggvara.

10:00-17:00 Verslunarmiðstöðin Víkurbraut 62, BÆJARBÓT.
Áhugaverðar fréttir úr Bæjarbót, bæjarblaði Grindvíkinga sem að kom út á árunum 1982-1996, rifjaðar upp.

13:00-16:00 Kvennó, SKIPSSTRÖND OG STRANDMINJAR.
Sýning á munum sem tengjast skipsströndum í nágrenni Grindavíkur auk þess sem sagt er frá strandminjum í myndum og máli.

14:00-16:00 Framsóknarhúsið, #GRINDAVIKVETUR.
Sýning á ljósmyndum grindvískra ljósmyndara sem tóku þátt í ljósmyndaleik grindavik.is.

FÖSTUDAGUR 8. MARS 
12:15 Kvikan, SÝNINGAROPNUN - SJÁLFSMYNDIR Á DRAUMASTAÐNUM.
Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Grindavíkur sýna verk sín sem unnin voru í myndment og textílment.

14:00-16:00 Kvikan, SÝNINGAROPNUN - KÆRLEIKUR.
Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna unnin í samstarfi við Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur, myndhöggvara.

16:30 Leikskólinn Laut, LISTAVERKASALA/-SÝNING LEIKSKÓLABARNA Á LAUT.
Hin árlega listaverkasala barnanna á Laut. Ágóðinn rennur í sjóð barnanna á vegum foreldrafélagsins.

19:00 Salthúsið, 60. ÁRA AFMÆLI HJÓNAKLÚBBS GRINDAVÍKUR.
Hjónaklúbburinn fagnar stórum áfanga með söng, grín og dansi fram á nótt. Öll hjón/pör og fyrrum klúbbfélagar velkomnir.

18:00 Íþróttahús, KÚTMAGAKVÖLD LIONSKLÚBBS GRINDAVÍKUR.
Húsið opnar kl. 18:00 með sjávarútvegssýningu. Borðhald byrjar kl. 20:00.

23:30 Salthúsið, KALEB JOSHUA.
Trúbadorinn vinsæli spilar inn í nóttina. Aðgangur ókeypis.

LAUGARDAGUR 9. MARS
11:00-17:00 SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM.
Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum er ókeypis á öll söfn, þar á meðal Kvikuna. Allir velkomnir á opnunartíma og um að gera að heimsækja viðburði innanbæjar og hjá nágrönnum okkar á Suðurnesjum

14:00 Grunnskólinn Ásabraut, RAUÐHETTA.
Leikhópurinn Lotta heimsækir Grindvíkinga og með er för eru Rauðhetta, úlfurinn og fleiri ævintýrapersónur. Miðaverð er 2.000 kr. og miðar eru seldir í Kvikunni.

17:00 Grindavíkurkirkja, FORMLEG SETNING MENNINGARVIKU 2019.
Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar afhent, söngur og skemmtun og eftir setninguna er gestum boðið í safnaðarheimilið í veitingar

22:00 Fish House, BJARTMAR GUÐLAUGSSON.
inn ástsælasti listamaður þjóðarinnnar heimsækir Grindvíkinga. Miðaverð 2.500 kr.

SUNNUDAGUR 10. MARS
11:00-17:00 SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM.
Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum er ókeypis á öll söfn, þar á meðal Kvikuna. Allir velkomnir á opnunartíma.

14:00 Kvikan, NOTALEG SÖGUSTUND.
Lesið verður upp úr óútkominni barnabók um Veröld vættanna. Bókin gerist í nágrenni Grindavíkur og er gefin út af Reykjanes UNESCO Global Geopark. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna.

15:00 Grindavíkurkirkja, SIGVALDI KALDALÓNS.
Tónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Kómedíuleikhúsið rekur sögu hans og flytur hans helstu perlur.

16:00 Grunnskólinn Ásabraut, BINGÓ.
Nemenda- og Þrumuráð stendur fyrir bingó fyrir íbúa og gesti Menningarvikur.

20:00 Safnaðarheimili Grindavíkurkirkju, KAFFIHÚSAMESSA - MATTHÍAS JOCHUMSSON Í TALI OG TÓNUM.
Sr. Elínborg Gísladóttir og Erla Rut Káradóttir organisti hafa umsjón með stundinni.

MÁNUDAGUR 11. MARS
16:30 Tónlistarskóli Grindavíkur, OPIÐ HÚS OG TÓNLEIKAR.
Tónlistarskólinn opinn gestum og gangandi. Nemendur og kennarar spila og syngja létt og skemmtileg lög í sal Tónlistarskólans, Ásabraut 2, kl. 17:30.

19:30 Bakki, ÉG MAN ÞIG.
Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir á kvikmyndasýningu á tökustað myndarinnar. Athugið að sætapláss er takmarkað.

19:30-22:00 Bókasafn Grindavíkur, MACRAMÉ NÁMSKEIÐ.
Ninna Stefánsdóttir, höfundur bókarinnar um Macramé kennir þessa einföldu og skemmtilegu handavinnu sem allir geta lært og notað til að fegra heimili sín. Aðeins 10 sæti í boði. Skráning fer fram á bókasafninu.

ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS
19:30 Bakki, SÍÐASTI BÆRINN Í DALNUM.
Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir á sýningu á þessari sígildu kvikmynd frá árinu 1950. Athugið að sætapláss er takmarkað.

20:30 Grunnskólinn Ásabraut, ARI ELDJÁRN.
Ungmennaráð Grindavíkur stendur fyrir uppistandskvöldi fyrir ungt fólk. Miðaverð 1.500 kr.

MIÐVIKUDAGUR 13. MARS
17:30-19:00 Kvennó, MÁLÞING UM STRANDMINJAR Í GRINDAVÍK.
Eggert Sólberg Jónsson og Gunnar Tómasson fjalla um strandminjar í og við Grindavík í fortíð og framtíð.

19:30 Bakki, ÉG MAN ÞIG.
Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir á kvikmyndasýningu á tökustað myndarinnar. Athugið að sætapláss er takmarkað. 20:00-22:00 Þruman, OPIÐ HÚS. Bæjarbúum er boðið í heimsókn í félagsmiðstöðina Þrumuna.

FIMMTUDAGUR 14. MARS
9:00-13:00 Tónlistarskóli Grindavíkur, MAXÍMÚS MÚSÍKÚS TRÍTLAR Í TÓNLISTARSKÓLANN.
Tónlistarmúsin Maxímús Músíkús heimsækir Tónlistarskóla Grindavíkur.

14:00 Víðihlíð, SÍÐASTI BÆRINN Í DALNUM.
Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir á sýningu á þessari sígildu kvikmynd frá árinu 1950.

FÖSTUDAGUR 15. MARS
18:00 Gjáin, KVENNAKVÖLD KÖRFUNNAR.
Nánar auglýst síðar.

LAUGARDAGUR 16. MARS
13:00-16:00 Bakki við Garðsveg, OPIÐ HÚS Í BAKKA.
Minja- og sögufélag Grindavíkur opnar eina elstu sjóverbúð á Suðurnesjum fyrir almenningi. Unnið er að því að koma húsinu í upprunalegt horf.

13:00-15:00 Grunnskólinn Ásabraut, LISTASMIÐJA BARNANNA.
Skapandi vinnustofa fyrir börn, 5 ára og eldri, þar sem unnið er að ýmiskonar listsköpun með endurvinnanlegt efni. Athugið breytta staðsetningu frá fyrri árum. Umsjónarmenn Kristín Páls og Dóra Sigtryggs.

22:00 Fish House, 30 ÁRA AFMÆLISTÓNLEIKAR.
Tómas Guðmundsson ásamt Brimróðri og Ellert H Jóhannsson ásamt Hált í Sleipu slá upp grindvískri tónlistarveislu í tilefni af 30 ára afmæli staðarins. Frítt inn.

SUNNUDAGUR 17. MARS
14:00 Víðihlíð, HEIMSKRINGLA.
Berta Dröfn Ómarsdóttir flytur íslensk sönglög úr Heimskringlu eftir Þórarinn Eldjárn og Tryggva M. Baldvinsson.

16:00 Grindavíkurkirkja, ALCINA OG HEIMSKRINGLA.
Berta Dröfn Ómarsdóttir flytur óperuaríur úr Alcina eftir Händel og íslensk sönglög úr Heimskringlu eftir Þórarinn Eldjárn og Tryggva M. Baldvinsson.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!