Grindvíkingurinn Guðjón Sveinsson er meðlimur tveggja hljómsveita, þeirra UMÆ og Ring of Gyges. Hann er elsti sonur hjónanna Sólnýjar Pálsdóttur og Sveins Ara Guðjónssonar. Það er óhætt að segja að Guðjón komi úr músíkalskri fjölskyldu, en Sólný hefur lengi sungið, auk þess sem næst elsti sonur þeirra Sighvatur og Sveinn faðir þeirra spila líka á gítar. Þá hafa fjölskyldumeðlimir farið fjórum sinnum í svokallaða rokk siglingu um Karabíska hafið.
En hvað er Guðjón að fást við þessa dagana?
"Ég er um þessar mundir búsettur í Stokkhólmi, þar sem ég er að klára BS nám í hljóðtækni. Er einnig í fullum gír við að semja tónlist sem að öllum líkindum mun rata á næstu plötur beggja hljómsveita (UMÆ og Ring of Gyges)."
Platan sem þið voruð að gera, Lost in the view, er með mynd af Þorbirni, hvernig kom það til?
"Platan er að miklu leiti unnin í Grindavík á þessum 6 vikum sem Anthony Cliplef, kanadískur meðlimur hljómsveitarinnar, varði á Íslandi. Þótti honum mikið til landslagsins koma, og einn morguninn rissaði hann upp mynd af Þorbirni. Þegar textarnir byrjuðu að koma saman fyrir plötuna, þótti okkur þetta tiltölulega táknrænt fyrir þema plötunnar, en fyrir honum var þetta ákveðið merki um nýja tíma. Við létum því fullvinna myndina út frá upprunalegu skissunni, og þetta varð útkoman."
Hvað er framundan hjá ykkur?
"Báðar hljómsveitir eru byrjaðar að vinna að nýju efni sem stefnt er á að taka upp í haust/vetur. Einnig eru byrjuð að myndast drög að tónleikaferðalagi um Evrópu í lok sumars. Þar sem meðlimirnir búa á víð dreif um heiminn verðum við að reyna að nýta tímann sem best í þau skipti sem allir geta komið saman."
Hér má sjá upprunalega skissu af Þorbirni, séð frá heimili Sólnýjar og Svenna í Efra hópi.